bluebill

Spurt og svarað   

Hvað er innifalið í langtímaleigu?

  • Bifreiðagjöld.
  • Lögboðin ökutækjatrygging og kaskótrygging með tiltekinni sjálfsábyrgð.
  • Reglubundnar þjónustuskoðanir og smur.
  • Rúðuþurrkur og ljósaperur.
  • Reglubundin dekkjaþjónusta (sumar- og vetrardekk).
  • Geymsla á dekkjum.
  • Lánsbíll án endurgjalds ef leigubifreið verður óökufær vegna bilunar eða tjóns. Lán á bíl er þó háð því að skilyrði skilmála séu uppfyllt.
  • Tveir ökumenn sem eru 18 ára eða eldri og hafa verið með ökuskírteini í a.m.k. eitt ár.

 

Hvar fer fram afhending á bíl?

Afhendingar á okkar bifreiðum fara fram á Blikavöllum 3 eða í útibúi okkar á Fiskislóð 22. Leigjandi einfaldlega tilgreinir í samningaferli hvar hann vill fá bifreiðina afhenda.


Hver er lágmarks leigutími?

Lágmarks leigutími er 3 mánuðir og hægt er gera leigusamning til allt að 36 mánaða. Ef þú hefur einhverjar aðrar þarfir þá er ekkert mál að hafa samband og við skoðum allt með opnum hug.


Hver er lágmarksaldur til að mega leigja bíl í langtímaleigu?

Lágmarksaldur til að leigja bíl í langtímaleigu hjá Blue Car Rental er 18 ár. Leigutaki þarf að sýna fram á það að hann sé búinn að vera með gilt ökuskírteini í a.m.k. 1 ár.

 

Hvernig og hvar skila ég bíl í lok langtímaleigu?

Bílum er skilað á Blikavöll 3 eða á Fiskislóð 22. Bíll skal vera þrifalegur, ef bíll er mjög óhreinn þá áskilur Blue Car Rental sér þann rétt að þrífa á kostnað leigutaka. Bíll þarf ávallt að vera fullur af eldsneyti. Farið er yfir bílinn og ástand metið.

 

Kílómetragjald á rafmagnsbíla og tengiltvinnbílum, hvernig er það innheimt?

Um áramótin 2023/2024 voru samþykkt ný lög sem ná yfir rafmagns- og tengiltvinnbíla. Á árinu 2024 er gjald á rafbíla 6 krónur á hvern ekinn kílómetra en 2 krónur á tengiltvinnbíla. Miðað verður við 1500 km akstur á mánuði og innheimt gjald út frá því eða 9.000 kr. á rafbíla og 3.000 kr. á tengiltvinnbíla. Eftir árs leigutíma er kílómetrastaða tekin og uppgjör fer fram. Ef kílómetrastaða er undir 1.500 km á mánuði endurgreiðum við leigutaka. Ef kílómetrastaða er meiri en 1.500 km greiðir leigutaki gjald miðað út frá kílómetrastöðu.  

 

Er rukkað fyrir umfram ekna kílómetra og hver er upphæðin?

Gjald fyrir umfram ekna kílómetra fer eftir stærð bifreiða. Gjaldið er 15-20 kr. fyrir fólksbíla en 18-24 kr. fyrir jepplinga og jeppa.

 

Hvernig fara greiðslur á langtímaleigu fram?

Flestir leigutakar velja að fá rafrænan greiðsluseðil í heimabanka og reikning í tölvupósti. Einnig er hægt að greiða með beingreiðslu ef það hentar betur.

 

Ef bifreið tjónast, hvað á að gera?

Blue Car Rental er með allar sínar bifreiðar tryggðar hjá VÍS. Ef tjón verður eða ef leigutaki er valdur að tjóni ber leigutaka að tilkynna það á langtimaleiga@bluecarrental.is  Starfsfólk Blue Car Rental aðstoðar svo leigutaka í gegnum allt ferlið.

 

Ef bifreið bilar, hvað á að gera?

Ef bifreið bilar er best að senda mail á langtimaleiga@bluecarrental.is og starfsfólk aðstoðar þig með næstu skref. Ef bilun leiðir til þess að viðgerð tekur lengri tíma en 1 klst þá útvegum við lánsbíl. 

 

Hvernig trygging er á bifreiðum?

Allar bifreiðar í langtímaleigu hjá Blue Car Rental eru með lögboðnar ökutækjatryggingar sem inniheldur ábyrgðartryggingu gagnvart þriðja aðila og slysatryggingu ökumanns og farþega. Að auki er kaskótrygging með tiltekinni sjálfsábyrgð. Sjálfsábyrgð á stærri bílum er 240.000 kr og á minni bílum 150.000. Ef leigutaki velur að greiða fyrir Bluevernd, sem er 7.990 á mánuði fyrir stærri bíla og 4.990 fyrir minni bíla, er sjálfsábyrgð engin. 

 

Hvert fer ég með bifreiðina í dekkjaskipti eða smurþjónustu?

Fyrir þá sem búa á Reykjanessvæðinu er öll þjónusta á Hólmbergsbraut 1. Þeir sem búa á Reykjavíkursvæðinu geta sótt alla dekkjaþjónustu til Kletts með því að bóka tíma hér Klettur - Pöntun . Smur- og þjónustuskoðun á Reykjavíkursvæði fer eftir því hvernig bíl leigutaki er með. Best er að senda fyrirspurn á langtimaleiga@bluecarrental.is og starfsfólk aðstoðar þig með næstu skref. 

2024 Blue Car Rental ehf. Allur réttur áskilinn.